Vettvangsferð á DV

Almannatengslafélag Íslands fyrir stendur fyrir heimsókn á ritstjórnarskrifstofur Birtíngs og DV miðvikudaginn 3. feb frá kl.13-14. Tilgangurinn er að gefa félögum í AÍ kost á að kynna sér starfshætti DV og tímarita Birtíngs.

Reynir Traustason ritstjóri tekur á móti okkur í anddyri Birtíngs að Stuðlahálsi 5 kl.13:00. Byrjað verður á stuttri skoðunarferð um húsnæði fyrirtækisins og heimsókninni lýkur svo með óformlegu spjalli þar sem okkur gefst tækifæri til að leggja spurningar fyrir yfirmenn á ritstjórnum blaðsins og tímaritanna.

F.h. stjórnar AÍ

Andrés Jónsson
s. 615-0110

Myndir frá hádegisverðarfundi

 

Fundurinn hjá Almannatengslafélaginu á Kringlukránni í dag þótti mjög vel heppnaður. Um 30 félagsmenn og gestir létu sjá sig.

Fundurinn hófst með því að Andrés Jónsson formaður félagsins skýrði frá því helsta sem er á döfinni hjá stjórninni. Hann sagði meðal annars frá könnun sem ráðgert er að gera meðal félagsmanna og skýrði einnig frá heimsóknum og fundum sem fyrirhugaðir eru á næstunni. Hjördís Árnadóttir varaformaður AÍ og sviðsstjóri ytri samskipta Actavis kynnti því næst niðurstöður European Communications Monitor 2009. Það er könnun um þróun fagsins sem byggðist á svörum 1850 almannatengla í 30 Evrópulöndum. Vakti erindi hennar nokkrar umræður. Að lokum kynnti Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson frá Clöru nýtt tól til að fylgjast með umfjöllun í fjölmiðlum og vakta umræðu á netinu. Tólið heitir "Vaktarinn".

Voru menn sammála um að hittast oftar á næstunni.

---

Hér eru nokkrar vefslóðir sem komu upp í umræðum á fundinum í dag:

European Communication Monitor 2009
www.communicationmonitor.eu (gögnin eru aðgengileg þar í pdf skjali, án endurgjalds)

European Association of Communication Directors
www.eacd-online.eu

Communication Director Magazine
www.communication-director.eu/
www.twitter.com/codimag

Andrés á Twitter: www.twitter.com/andresjons
Hjördís á Twitter: www.twitter.com/hjodda
Gunnar á Twitter: www.twitter.com/gunniho
AÍ á Twitter: www.twitter.com/almannatengsl
AÍ á Flickr: www.flickr.com/almannatengsl

Clara - www.clara.is
Vaktarinn - www.vaktarinn.is


Hér má einnig sjá nokkrar myndir frá fundinum.

(download)